Brjóstamjólkurpelar úr polypropylen frá Medela og Lansinoh eru vönduð ílát til að geyma í brjóstamjólk
Hreinsun og hreinlæti
Fyrir fyrstu notkun og daglega eftir það takið alla hluti í sundur, setjið í hæfilega stóran pott, fyllið upp með köldu vatni, látið suðuna koma upp og sjóða í 3 mínútur eða setjið í efri grind á uppþvottavél
Eftir hverja notkun
Þvoið alla hluti upp í heitu sápuvatni, skolið með hreinu vatni og látið síðan þorna á hreinu stykki
Viðvörun
Geymið alla hluti sem ekki eru í notkun utan seilingar barna
Forðist að snerta innri hlið pela eða loka.
Geymsla og þíðing á brjóstamjólk
(fyrir heilbrigð og fullburða börn)
Fersk móðurmjólk:
Stofuhiti: Geymið ekki við stofuhita
Ísskápur: 3-5 sólarhringa við ca 4°C
Frystir í ísskáp: 6 mán við ca. -16°C
Djúpfrystir: 12 mán við ca. -18°C
Þídd móðurmjólk (áður verið fryst)
Stofuhiti: Geymið ekki við stofuhita
Ísskápur: 10 klst.
Frystir í ísskáp: Frystið ekki aftur
Djúpfrystir: Frystið ekki aftur
Þegar frysta á brjóstamjólk, fyllið pelana ekki alveg vegna rúmmálsaukningar
Merkið pelana með dagsetningu
Til að mjólkin haldi eiginleikum sínum, þíðið hana í ísskáp yfir nótt eða haldið henni undir volgri vatnsbunu (37°C)
Hristið pelann varlega til að blanda saman fitu sem kann að hafa skilist frá.
Þíðið ekki brjóstamjólk í örbylgjuofni eða heitu vatni, það getur valdið bruna