Toblerone mousse

300 g Toblerone
2 egg
2 tsk flórsykur
4 dl rjómi, léttþeyttur

Saxið súkkulaðið og bræðið yfir vatnsbaði eða í örbylgju.
Þeytið saman egg og flórsykur og hrærið saman við súkkulaðið.
Kælið lítillega og blandið súkkulaðimassanum og rjómanum varlega saman.

Setjið í skálar (eða eina stóra) og kælið í kæliskáp í 2-3 klst (í það minnsta).
Skreytið að vild.