kreppuvænn saumaskapur

Öll miðvikudagskvöld í nóvember voru undirlögð hjá mér, þar sem ég fór á saumanámskeið í Prem hjá Helgu Rún og Elínu. Ég er nú ekkert útlærð, enda er klæðskeranám aðeins lengra en 12 klst (4 ár held ég) en ég kann þó að taka upp snið og þori að setjast við saumavél og gera einfaldar flíkur.

Ég gerði t.d. stórgóð kaup á Akureyri um daginn, keypti kápu í RauðaKrossbúðinni á litlar þúsund krónur, skósíð og stór og mikil, mætti með kápuna eitt kvöldið á námskeiðið, fékk aðstoð við að stytta og þrengja kápuna, fór svo með hana í hreinsun og þetta er eins og ný flík. Kreppuvænt, ekki satt?

Jibbí!