prjón

Nýjasta áhugamálið mitt er prjónaskapur. Ég hef alltaf af og til tekið prjónaskorpur, hef prjónað fjöldann allan af treflum og tók húfuskorpu fyrir nokkrum árum síðan. Í fyrra þegar ég komst að því að ég væri barnshafandi keypti ég prjónablöð og garn og ætlaði svo sannarlega að prjóna á litla krílið. Ég byrjaði á teppi í mars í fyrra og kláraði það í febrúar síðastliðnum. Þetta átti að verða lítið og sætt ungbarnateppi en það dugar yfir mig alla. … og ég prjónaði aldrei á litla bumbukrílið.

María litla frænka mín (sem er ekkert lítil lengur) prjónaði sína fyrstu lopapeysu um daginn og vinkona mín úr bumbuhópnum prjónaði kjól og þetta tvennt varð til þess að ég fór af stað og fitjaði upp …

Ég prjónaði mér lopavesti með munsturbekk á rétt tæpri viku og er búin að fitja upp og byrjuð á næsta verkefni. Ætla að gera mér annað vesti en prjóna minni stærð og á stærri prjónum (til að gera það aðeins gisnara) og hafa það líka síðara.