sat heima í gær (17.09.) og hundleiddist, svo í dag (18.09.) var ég tilbúin með plan þegar sverrir kom úr vinnunni – við skyldum kaupa gardínur. ætlaði nú bara í ikea en ákváðum svo að fara í z-brautir og fundum þetta líka fína efni og keyptum það bara einn tveir og þrír. svo nú hef ég eitthvað að brasa um helgina, ef ég treysti mér til og nenni.
annars saumaði ég utan um skiptidýnuna í dag og líka eitt stykki sængurver og byrjaði á stuttbuxum fyrir sverri sem ég hef ætlað að sauma síðan í sumar. þvílíka húsmóðirin.
í kvöld fór ég síðan að velta fyrir mér vöggudýnunni, þar sem ég sprautaði á hana með sítrónuvatni og sá fyrir mér að hún væri farin að mygla eða eitthvað þaðan af verra. hún var það nú sem betur fer ekki en fúkkalyktin var ennþá svo við ákváðum að kaupa nýja vöggudýnu. ég skellti síðan öllu klabbinu (lökum, yfirdýnu, vögguáklæði, sængurfatnaði) í þvott og setti nokkra lavender dropa í vögguna til að fá betri lykt. getum vonandi fengið nýja vöggudýnu á morgun, eða í síðasta lagi eftir helgi.
jájá, voða róleg í þessu allt í einu, enda ekkert að gerast
pantaði mér tíma í nálastungur og meðgöngunudd hjá Brynju í Hamraborg (sem Maggý í Mecca Spa mælti svo ofsalega mikið með), átti upphaflega að fá tíma í dag, sem frestaðist til morguns, sem frestaðist til laugardagsmorguns.
í nótt hef ég verið að dunda mér við saumaskap, kláraði næstum því stuttbuxurnar hans sverris og setti svo plastið á sturtuhengið, nokkuð sem hefur verið á planinu í allt sumar, til að koma í veg fyrir leka út á gólf þegar maður er í sturtu. er lítið sem ekkert þreytt, en verð víst að fara að koma mér í smá svefn enda klukkan að nálgast 4. meiri næturgalinn sem ég er.