ÞRISTAR
4 eggjahvítur
230 gr ljós púðursykur
Einn þristapoki
Stífþeyta eggjahvíturnar – setja svo púðursykurinn hægt og rólega útí. Skera þristana niður og blanda þeim í deigið. Sett á pönnu og bakað við 125 gráður í 40 mínútur. Algjört NAMMI.
LAKKRÍSKURL
3 Eggjahvítur
200 gr Púðursykur
150 gr Rjómasúkkulaði
1 1/2 pk lakkrískurl
Stífþeytið eggjahvítur og hrærið svo púðursykri saman við þangað til hann er uppleystur.
Söxuðu súkkulaði og kurli bætt varlega saman við.
Bakað við 170°c í 11-13 mínútur.
PIPPKROPP
3 Eggjahvítur
150 gr Flórsykur
2 stk Pipp
100 gr Nóakropp
Stífþeyta eggjahvítur, flórsykri bætt hægt við, saxa pipp og merja pippið og blandað varlega saman við.
Bakist við 150°c í 50 mínútur
KORNFLEX
4 eggjahvítur
2 bollar púðursykur > stífþeytt.
4 bollar kornflex
2 bollar af kókosmjöli blandað saman við
100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði
1 tsk af vanilludropum
Sett með teskeið á bökunarpappirsklædda plötu í smá toppa. Bakað við 150 gráðu hita í ca 15 mín.