Lion Bar smákökur

100gr lion bar
100gr suðuskúkkulaði
180gr púðursykur
80gr smjör
1 egg
160gr hveiti
1/4 tsk natron
1/2 tsk salt
1 tsk vanilludropar

Sykur, egg, vanilludropar og smjör þeytt saman þar til ljóst og létt. Þurrefnum blandað saman við þeytinginn. Súkkulaðinu og Lion Bar blandað varlega við.
Ég baka þetta við 180°c í ca 8 mínútur.
Það má alls ekki baka þetta of lengi, þá verða þær glerharðar. Leyft að kólna á plötunni og sett svo beint í poka eða box. Þær eru bestar (að mér finnst) þegar þær eru mjúkar og rifna næstum því

Blúndur

150 gr smjör
2 dl sykur
1,5 dl rjómi
1,5 dl sýróp
2 dl haframjöl
2 dl hveiti
0,5 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar (ef vill)
suðusúkkulaði

Bræðið smjör í potti. Bætið hinu hráefninu (nema súkkulaðinu) út í pottinn og hitið á vægum hita. Látið kólna aðeins og setjið síðan með tsk á plötu og hafið gott bil á milli. Nóg er að setja hálfa tsk en ef kökurnar eiga að vera stórar þá er ein teskeið nægileg. Bakið kökurnar örstutt við 200°C (180 í blástursofni) eða þar til þær verða ljósbrúnar.
Bræðið suðusúkkulaðið og skreytið kökurnar með því að vild eftir smekk eftir að þær hafa kólnað.

Súkkulaðibitakökur – ljósar

Súkkulaðibitakökur (slógu í gegn jólin 2007 heima hjá mér)

1 bolli hveiti
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
150 g smjörlíki
6 msk sykur
6 msk púðursykur (ekki verra að hann sé ljós)
1/2 tsk vanilludropar
1/4 tsk vatn
1 egg
100-200 g suðusúkkulaði
1 bolli af söxuðum heslihnetum

Hveiti, matarsóda og salti sigtað saman og lagt til hliðar. Því næst er smjörlíki, sykri, púðursykri, vanilludropum, vatni og eggi þeytt saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Síðan er þurrefnunum hrært út í og að síðustu niðurbrytjuðu súkkulaðinu (og hnetunum, ef vill).

Bakað við 175°C í 10-12 mínútur

Gullhnetur

Gullhnetur, u.þ.b. 25-30 stk

150 g sykur
3 egg
230 g kókosmjöl
100 g súkkulaði

Hitið ofninn í 200°C. Hitið sykur, egg og kókosmjöl í potti við vægan hita þar til blandan verður vel heit. Setjið í toppa á smjörpappírsklædda ofnplötu. Það er gott að nota blauta fingur því deigið er klístrað. Bakið í 15 mín. Bræðið súkkulaði og dýfið botnunum á kökunum ofan í það þegar þær hafa kólnað aðeins. Geymið þessar kökur í kæliskáp.

(Gestgjafinn, 13.tbl. 2007, bls. 98 )