
Brynhildur Daðína mætt á sinn þriðja jólafund. Söng jólalögin hátt og snjallt og talaði við jólasveininn Gluggagægi.

Brynhildur Daðína mætt á sinn þriðja jólafund. Söng jólalögin hátt og snjallt og talaði við jólasveininn Gluggagægi.
Í dag þegar Brynhildur kom heim af leikskólanum mátti hún ekkert vera að því að heilsa mér, hún sagði bara óðamála: “Má Arna Sóley koma heim til mín og ég var fiðrildi í dag”.
Rétt orðin þriggja ára og farin að spyrja hvort vinkona megi koma í heimsókn. Yfirmáta krúttlegt!
í útvarpinu var minnst á akureyri í tengslum við einhverjar fréttir.
“hún tali aguli pabbi” : hún talaði akureyri pabbi : hún sagði akureyri pabbi
“einu sinni fyrir langa löngu voru lítil börn og risaeðla. risaeðlan ætlaði að bíta börnin en þá hlupu þau heim til mömmu og pabba. þá voru þau ekki lengur hrædd.”
á morgun byrjar BD á tónlistarnámskeiðinu Með á nótunum.
það verður spennandi
Brynhildur er ákaflega spennt fyrir tölvunni og hefur nú, mánuðum saman, skemmt sér við að ýta á takkana á lyklaborðinu.
Í gær sendi hún pabba sínum þessi skilaboð á msn:
- + +- + + – - +–/_-’ð- ‘þöðöððö_Ðððö+þ ´ð,,,,,,,,,,,,7 +4, ´+ð7
Fös 6 Nóv 2009 – 0:41
Brynhildur hefur sent sín fyrstu myndskilaboð úr farsíma föður síns yfir í síma móður sinnar. Án aðstoðar.
Við vorum sem sagt að útrétta í dag og hún var farin að kvarta all nokkuð í aftursætinu svo ég rétti henni símann hans Sverris, því símar (og fjarstýringar) lækna allt. Svo heyrum við að hún hefur náð að opna símann, þ.e. ýta á miðjutakkann og svo stjörnuna og er að hamast eitthvað á tökkunum. Svo greinilega læsir hún tökkunum aftur, og opnar aftur, og læsir aftur o.s.frv. og hamast þess á milli á tökkunum.
Svo komum við á næsta áfangastað og tökum af henni símann, þá er hún komin inn í myndagallerýið í símanum, opið á mynd af henni og sending “til margra” í gangi ![]()
Henni tókst að senda mér tvisvar sinnum sömu myndina af sér áður en við náðum að stoppa sendingarnar
bara til gamans

var að kíkja á netmoggann og rak augun í stjörnuspá dótturinnar:
“VOG 23. september – 22. október
Notaðu daginn til þess að slappa af heima og gera eins lítið og þér er frekast unnt. Gefðu ekki nema þú sért aflögufær. “
á morgun stefnum við á heilsugæsluna, í mömmuhitting, mögulega á þjóðfund við arnarhól … það verður lítið slappað af heima sem sagt. og ég efast um að hún verði aflögufær nema um slatta af yndislegum brosum, en það er líka miklu meira en nóg
litla yndislega stúlkan er 2ja mánaða í dag. ótrúlegt hvað tíminn flýgur.
ég hef öðlast alveg nýjan skilning á orðinu “úrvinda” og “þreytt”. mikið þykir mér fyndið að heyra barnlaust fólk tala um hvað það er þreytt. alveg sama hvort það er vegna vinnu (því maður fær nú venjulega helgarfrí frá vinnu, allavega einu sinni í mánuði, auk þess sem maður getur sjálfur alltaf haft einhver áhrif á vinnutímann – plús að maður fær borgað fyrir vinnu) eða djamms (þá er fólki engin vorkunn
)
ég hef ekki náð meira en 3ja tíma samfelldum svefni í nokkra mánuði, ég sé ekki fram á að geta sofið “út” í nánustu (nokkurra mánaða a.m.k.) framtíð og alla daga geng ég um gólf með hágrátandi ungabarn í fanginu og geri hnébeygjur í þeirri von að hreyfingin huggi.
gallarnir við þetta eru augljósir.
kostirnir: ég þarf varla að kaupa mér rándýrt kort í líkamsræktarstöð! og inn á milli magaverkjakasta fæ ég dásamleg bros frá yndislegri lítilli manneskju. mikið vona ég að þetta séu bara byrjendaörðugleikar og mallakúturinn hennar lagist sem fyrst, hún fari að geta sofið betur og lengur – og ég líka.