fyrsta akureyrarferð ársins

föstudaginn 25. mars lagði fjölskyldan land undir fót og ók sem leið lá norður í eyjafjörð. ferðin gekk mjög vel. við sóttum BD á leikskólann beint eftir hádegismatinn og lögðum þ.a.l. af stað um 11:45. BD sofnaði sennilega í Ártúnsbrekkunni og svaf alla leið í Borgarnes, HÞ svaf h.u.b. alla leiðina, nema vaknaði nokkrum mínútum áður en við komum að Staðarskála. Sofnaði síðan strax og við komum aftur í bílinn eftir matarstopp. kvöldið var svolítið erfitt fyrir HÞ en hann fékk þá sína verstu magakrampa frá fæðingu, nokkuð sem við tengjum við það að hafa legið í kúldri í bílstólnum allan daginn og því ekki getað losað sig við loft.

Við skötuhjúin fórum í bíó á laugardeginum, fórum að sjá myndina “the unknown” og voru börnin í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu á meðan. við lögðum síðan ekki af stað suður aftur fyrr en á þriðjudeginum 29. mars og gekk heimferðin jafn vel og norðurferðin.

páskar 2010

við fórum norður um páskana, og hvílík dásemd.
við vöknuðum aldrei með barninu og sinntum því varla – það út af fyrir sig er engin dásemd því barnið sjálft er dásemd. en að sofa út! halló! dásemd!

hún hins vegar tók upp á því að taka 3 augntennur í einu og er enn mjög vælin og rellin yfir því litla skinnið.

hversu margar tennur fá þau eiginlega? hún er allavega komin með 16 núna og mér finnst ótrúlegt til þess að hugsa að það eru bara 2 mánuðir síðan hún hætti á brjósti!