Skírn 25. október 2008 – fyrsta vetrardag

Athöfnin fór fram í skátaskálanum við Hvaleyrarvatn kl 12 á hádegi, laugardaginn 25. október 2008.
Ég hélt sjálf á barninu undir skírn. Nafnið sem við völdum var (er) Brynhildur Daðína. Brynhildur er út í loftið en Daðína er eftir langömmu minni. Skírnarskálin er skál sem kom í hlut foreldra minna þegar langamma mín lést fyrir tæpum 10 árum síðan. Skálina hafði amma mín keypt í nafni ófædds sonar síns (pabba míns) og gefið mömmu sinni (langömmu minni) jólin 1947.

Athöfnin:
Séra Einar bauð fólk velkomið.
Við Sverrir fluttum lagið “Enginn nema þú” eftir hljómsveitina Buff og það gekk mjög vel og var mjög notaleg stund. Síðan tók Einar við og fór með sinn texta, farið var með trúarjátninguna, nafnið gefið og síðan farið með FaðirVorið og loks sunginn einn sálmur “Blíði Jesú blessa þú”. Þá var sjálfri athöfninni lokið.

Boðið var upp á franska kjötsúpu (nautakjöt, beikon, kartöflur, gulrætur, laukur, púrrulaukur) og tvenns konar brauð og eftir á var frönsk súkkulaðikaka með jarðarberjum og rjóma og kaffi.

Um kl 15:30 voru allir gestir farnir.
Kl 17 byrjaði síðan vinaveislan heima hjá okkur. Þar var boðið upp á þrenns konar brauðtertur (skinku-, hangikjöts- og túnfisksalat) og síðan kaffi og konfekt á eftir. Síðustu gestirnir fóru um 19:30.

Veðrið þennan dag var dásamlegt, snjór yfir öllu og glaðasólskin.
Virkilega notalegur og góður dagur.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>