lasarus

38,5°C, hor og slím niður í lungu, hósti sem heldur fyrir manni vöku, lekandi vökvi út úr eyranu, tilheyrandi jafnvægisskerðing, lystarleysi og bragðskynið farið.

til hamingju með nýja heimilið, nýja kvefpest.

ég hef fengið nóg. 12 vikur er miklu meira en yfirdrifið.

Labbakútur

Hákon bætir sífellt við sig skrefum þessa dagana. 2 skref 30. desember, 3 skref miðvikudag síðustu viku, 4 og 5 skref í gær. Þau systkinin eru dugleg við að fara í eltingaleik kringum stofuborðið, öllum viðstöddum til mikillar gleði og hlátraskalla.