úbbs

Magnað.net var að flytja og færa sig á milli hýsingaraðila og þá fór eitthvað úrskeiðis, svo það er ekki allt alveg eins og það á að vera.

Það verður lagað smám saman, þegar tími gefst til :-)

gestabókin komin í lag

Var að lagfæra gestabókina – gestir (ef einhverjir eru) mega alveg endilega kvitta :-)

p&m komu að norðan á fimmtudagskvöld og voru hjá okkur um helgina, brynhildi til mikillar gleði. hún var aldeilis hissa þegar við komum fram á föstudaginn, að sjá afa og ömmu á svefnsófanum í stofunni. hún naut dagsins svo sannarlega í góðum félagsskap, fór í ikea og í heimsókn til langafa og langömmu og var hin ljúfasta.

á laugardaginn var haldið jólaball vegagerðarinnar en brynhildur vaknaði alveg stútfull af kvefi svo við mamma drifum okkur með hana upp á sólvang þar sem læknir hlustaði hana. hann fann ekkert að eyrunum og ekkert heyrðist í lungunum, en við ákváðum að fara ekki á jólaballið þetta árið.

hún er enn uppfull af slími en virðist ná að hósta því að mestu upp úr sér, svo það er ekkert ofan í henni. hún er greinilega orðin leið á því að hanga inni dögum saman, því hún er farin að koma með skóna sína til okkar og spókar sig skælbrosandi um allt.

við fórum í heiðmörk í gær og náðum okkur í jólatré og það fannst henni sko ekki leiðinlegt, þar var margt um manninn og margt að sjá.

nýjasta nýtt hjá brynhildi er að benda á hluti og segja “oj”. hún meinar það samt alls ekki sem “oj” heldur er þetta allsherjarorð eins og “ú” var síðast. stórskemmtilegt og getur sannarlega valdið misskilningi :-D