jææææja

Hér gerist aldrei neitt – en samt er frá svo mörgu að segja. Meiri vitleysan að halda þessu ekki við jafnóðum.

Staðan í dag: HÞ er að verða 15 mánaða og BD 43 mánaða (3ja ára og 7 mánaða).

BD er alsæl á leikskólanum, alltaf jafn spennt að fara þangað og leika við vinkonur sínar. Skemmtilegast af öllu finnst henni að fara út að leika. Þá fara þær í gönguferðir, príla í hrauninu, hlaupa á grasinu, fara í skógarleiðangra og margt fleira. Hún stendur á haus hvar sem hún getur og er að æfa sig að gera handahlaup. Þrautabrautir eru settar upp reglulega í leikskólanum og þá er hlustað á tónlist um leið og hoppað er niður af borðum. Þær hlusta greinilega talsvert á eurovision lögin, hér er mikið sungið “Stattu upp (fyrir sjálfum þér)” og svo er oft beðið um “Fiðlulagið” (sigurlagið á rúv þetta árið).
BD hætti daglúrum nú í vetur en sofnar þó ef við förum í bíltúra á aðal þreytutímanum. Hún fer að hátta og bursta tennur þegar íþróttafréttirnar byrja í sjónvarpinu og síðan eru lesnar 1-2 bækur. Hún sofnar einhvern tímann milli 19:30 og 20 og sefur til um 6:30.
BD reynir hvað hún getur og vælir í tilraunum til að fá sínu framgengt og eitthvað gengur nú hægt að venja hana af þessum leiðinlega sið en það skal takast. Allavega áður en hún giftir sig.

HÞ er skemmtilegur strákur, brosmildur og kátur, en mjög uppátækjasamur. Hann byrjaði að ganga 10,5 mánaða gamall og hefur varla stoppað síðan. Hann klifrar og prílar upp í allt og upp um allt, tæmir leikfangakassa til þess eins að snúa þeim við og nota sem tröppu. Hann hefur mjög gaman af því að príla upp á sófaborðið, stendur síðan þar hnarreistur, ánægður með sig og dillar sér svolítið. Hann sér ekki sólina fyrir systur sinni en er annars mikill mömmustrákur. Hann er þrautseigur og þrjóskur sem naut, veður áfram eins og valtari ef hann ætlar sér eitthvað. Hann virðist algjörlega óttalaus og óþreytandi. Hann þarf allverulega að komast í félagsskap annarra barna og fær pláss hjá dagmömmu í ágúst, mögulega fyrr.

krúttlegt

Í dag þegar Brynhildur kom heim af leikskólanum mátti hún ekkert vera að því að heilsa mér, hún sagði bara óðamála: “Má Arna Sóley koma heim til mín og ég var fiðrildi í dag”.

Rétt orðin þriggja ára og farin að spyrja hvort vinkona megi koma í heimsókn. Yfirmáta krúttlegt!

litli snillingurinn

í útvarpinu var minnst á akureyri í tengslum við einhverjar fréttir.
“hún tali aguli pabbi” : hún talaði akureyri pabbi : hún sagði akureyri pabbi

“einu sinni fyrir langa löngu voru lítil börn og risaeðla. risaeðlan ætlaði að bíta börnin en þá hlupu þau heim til mömmu og pabba. þá voru þau ekki lengur hrædd.”

eyrnabólguvesenið

þriðjudaginn 21. september fékk ég símtal frá hjalla kl 14. þá hafði brynhildur verið eldhress um morguninn en vaknað síðan eftir hádegislúrinn alveg ómöguleg og var óhuggandi. hafði bara sofið í um hálftíma og því grátið í um 1,5 klst þegar þær hringdu í mig. ég fór beinustu leið og sótti hana og hún var áfram óhuggandi.
Continue reading

páskar 2010

við fórum norður um páskana, og hvílík dásemd.
við vöknuðum aldrei með barninu og sinntum því varla – það út af fyrir sig er engin dásemd því barnið sjálft er dásemd. en að sofa út! halló! dásemd!

hún hins vegar tók upp á því að taka 3 augntennur í einu og er enn mjög vælin og rellin yfir því litla skinnið.

hversu margar tennur fá þau eiginlega? hún er allavega komin með 16 núna og mér finnst ótrúlegt til þess að hugsa að það eru bara 2 mánuðir síðan hún hætti á brjósti!

torræð skilaboð

Brynhildur er ákaflega spennt fyrir tölvunni og hefur nú, mánuðum saman, skemmt sér við að ýta á takkana á lyklaborðinu.

Í gær sendi hún pabba sínum þessi skilaboð á msn:

- + +- + + – - +–/_-’ð- ‘þöðöððö_Эððö+þ ´ð,,,,,,,,,,,,7 +4, ´+ð7

brynhildur símamær

Fös 6 Nóv 2009 – 0:41
Brynhildur hefur sent sín fyrstu myndskilaboð úr farsíma föður síns yfir í síma móður sinnar. Án aðstoðar.

Við vorum sem sagt að útrétta í dag og hún var farin að kvarta all nokkuð í aftursætinu svo ég rétti henni símann hans Sverris, því símar (og fjarstýringar) lækna allt. Svo heyrum við að hún hefur náð að opna símann, þ.e. ýta á miðjutakkann og svo stjörnuna og er að hamast eitthvað á tökkunum. Svo greinilega læsir hún tökkunum aftur, og opnar aftur, og læsir aftur o.s.frv. og hamast þess á milli á tökkunum.

Svo komum við á næsta áfangastað og tökum af henni símann, þá er hún komin inn í myndagallerýið í símanum, opið á mynd af henni og sending “til margra” í gangi :D
Henni tókst að senda mér tvisvar sinnum sömu myndina af sér áður en við náðum að stoppa sendingarnar