Hér gerist aldrei neitt – en samt er frá svo mörgu að segja. Meiri vitleysan að halda þessu ekki við jafnóðum.
Staðan í dag: HÞ er að verða 15 mánaða og BD 43 mánaða (3ja ára og 7 mánaða).
BD er alsæl á leikskólanum, alltaf jafn spennt að fara þangað og leika við vinkonur sínar. Skemmtilegast af öllu finnst henni að fara út að leika. Þá fara þær í gönguferðir, príla í hrauninu, hlaupa á grasinu, fara í skógarleiðangra og margt fleira. Hún stendur á haus hvar sem hún getur og er að æfa sig að gera handahlaup. Þrautabrautir eru settar upp reglulega í leikskólanum og þá er hlustað á tónlist um leið og hoppað er niður af borðum. Þær hlusta greinilega talsvert á eurovision lögin, hér er mikið sungið “Stattu upp (fyrir sjálfum þér)” og svo er oft beðið um “Fiðlulagið” (sigurlagið á rúv þetta árið).
BD hætti daglúrum nú í vetur en sofnar þó ef við förum í bíltúra á aðal þreytutímanum. Hún fer að hátta og bursta tennur þegar íþróttafréttirnar byrja í sjónvarpinu og síðan eru lesnar 1-2 bækur. Hún sofnar einhvern tímann milli 19:30 og 20 og sefur til um 6:30.
BD reynir hvað hún getur og vælir í tilraunum til að fá sínu framgengt og eitthvað gengur nú hægt að venja hana af þessum leiðinlega sið en það skal takast. Allavega áður en hún giftir sig.
HÞ er skemmtilegur strákur, brosmildur og kátur, en mjög uppátækjasamur. Hann byrjaði að ganga 10,5 mánaða gamall og hefur varla stoppað síðan. Hann klifrar og prílar upp í allt og upp um allt, tæmir leikfangakassa til þess eins að snúa þeim við og nota sem tröppu. Hann hefur mjög gaman af því að príla upp á sófaborðið, stendur síðan þar hnarreistur, ánægður með sig og dillar sér svolítið. Hann sér ekki sólina fyrir systur sinni en er annars mikill mömmustrákur. Hann er þrautseigur og þrjóskur sem naut, veður áfram eins og valtari ef hann ætlar sér eitthvað. Hann virðist algjörlega óttalaus og óþreytandi. Hann þarf allverulega að komast í félagsskap annarra barna og fær pláss hjá dagmömmu í ágúst, mögulega fyrr.






