Krukkurnar, þær voru nú aldeilis stórt atriði. Það var einhvern tímann um mitt sumar sem krukkuhugmyndin kom til. Ég sá mynd á netinu af uppdekkuðu borði þar sem búið var að raða krukkum í einfalda röð eftir borðinu endilöngu. Krukkurnar voru af öllum stærðum og gerðum og í þeim voru kerti. Birtan af þessu var ljómandi falleg og hlýleg og heillaði mig undir eins. Continue reading
Category Archives: 1111
Reyniberjabrjálæðið
Fyrstu hugmyndir voru að nýta náttúruna, jafnvel safna haustlaufum, nota haustlitina. Appelsínugulur, brúnn, rauður, grænn, gulur, fjólublár. Reyniber, reyniber, reyniber.
Eftir smá vangaveltur sá ég fyrir mér molnuð lauf út um allt og fannst það ekki sérlega snyrtilegt, svo úr varð að halda sig við reyniberin. Continue reading
Samningur fyrir guð eða sýslumann?
Ég hef heyrt því fleygt að “allar stelpur byrji að skipuleggja brúðkaupið sitt þegar þær eru litlar”. Aðra eins fjarstæðu hef ég ekki heyrt. Aðeins eitt atriði var alveg á hreinu – mér fannst kirkjubrúðkaup ekki vera fyrir mig. Það var ákaflega heppilegt að Sverrir var á sömu skoðun. Continue reading
Skipulagning skipulagninganna
Að kvöldi 7. febrúar sl. gaf Sverrir Iðunni hring. Þetta var gamall hvítagullshringur sem pabbi hans hafði gefið mömmu hans árið 1974 – í sama tilgangi og hann gaf nú Iðunni þennan sama hring.
Eitt skilyrði setti hann festunum, hjónavígsla skyldi fara fram innan árs. Continue reading