Mál og vog

Featured

Mál og Vog (fengið að láni hjá Erlu Steinu)

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave = 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafnið glataðist í flutningum og ég er svona smám saman að safna því aftur hérna inn.
Eldhússmellir
Bakstur

Vöfflur

  • 2 egg
  • 1 msk sykur
  • 250 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk kardimommudropar
  • 1 tsk vanilludropar
  • 3-4 dl mjólk
  • 80 g smjörlíki

Sykur og egg hrært saman. Hluta af þurrefni blandað við og hluta af mjólk þar til allt er komið í hrærigraut. Bræddu smjörlíki hellt varlega útí hrærigrautinn
Dropunum bætt svo í lokin

Smyrjið vöfflujárnið fyrir notkun.

Borðist með kærleika, rabbarasultu, jarðaberjasultu, vanillusósu eða rjóma. Líka gott með ís um helgar..

Kryddkaka

  • 220 g sykur (600g)
  • 240 g hveiti (700g)
  • 2 tsk matarsódi (6 tsk)
  • 3/4 tsk kanill (2,5 tsk)
  • 3/4 tsk negull (2,5 tsk)
  • 3/4 tsk engifer (2 tsk)
  • 2 stk egg (6 stk)
  • 80 g smjörlíki (240 g)
  • 2 dl mjólk (6dl)

Blandið saman þurrefnum, blandið saman bræddu smjöri, eggjum og mjólk. Hrærið vökvanum saman og blandið við þurrefnin. Vinnið rólega þar til allir kekkir eru horfnir.

Bakað við 175°C í 40-50 mín.

Fallegt að setja hnetur yfir fyrir bakstur.

(Geri þrefalda uppskrift, set í fjögur formkökuform)

 

Kaldur brauðréttur (hbs)

  • 1 lítil dós majónes
  • 300 g rækjur
  • 1/2 dós ananaskurl
  • 1 rauð paprika
  • 1 græn paprika
  • 1/2 – 1 púrrulaukur
  • 2-3 tómatur
  • 1/2 agúrka
  • hvítt brauð (gróft ef vill)

Blandið, saman majónesi, rækjum og ananaskurli.
Rífið brauðið niður í fat og setið rækjublönduna þar ofan á.
Grænmetið er skorið smátt og sett ofan á.
Borið fram vel kalt.

Skúffukaka aldamóta

  • 2 1/2 bolli hveiti
  • 2 bollar sykur
  • 1/2 bolli kakó
  • 1 tsk sódaduft
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk kanill
  • 2 egg
  • 1/2 bolli brætt smjör (100 g)
  • 1 bolli súrmjólk
  • 1/3 bolli heitt vatn

Bakað við 125°C í ca 20-30 mín

Krem:

  • 2 bollar flórsykur
  • 1 msk kakó
  • 2-3 msk brætt smjörlíki
  • 1 tsk vanilludropar
  • kaffi e. smekk

hrært saman, smurt á volga kökuna, kókosmjöli stráð yfir